Dana Ireland var aðeins 23 ára þegar hún var myrt á Hawaii, en hún fannst alvarlega slösuð á afskekktum stað að kvöldi jóladags árið 1991. Hún lést á sjúkrahúsi daginn eftir og leiddi rannsókn í ljós að henni hafði verið nauðgað áður en árásarmaðurinn reyndi að ráða henni bana. Ireland var ferðamaður frá Virgínuríki og hugðist eyða jólahátíðinni á Hawaii.
Lögregla handtók mann að nafni Albert Schweitzer vegna málsins og fór svo að hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi vegna morðsins. Eftir að hafa setið í fangelsi í rúm tuttugu ár vegna morðsins á Ireland var honum sleppt eftir að DNA-rannsókn leiddi í ljós að hann kom hvergi nálægt morðinu.
DNA-sýnið benti nefnilega á annan mann, Albert Lauro, og fór það að lokum svo að Schweitzer var sleppt úr haldi á síðasta ári. Stuttu eftir að lögregla fékk heimild til að taka DNA-sýni úr Lauro fannst hann látinn á heimili sínu af völdum sjálfsvígs.
Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að lögregla hafi haft næg sönnunargögn til að ákæra Lauro fyrir nauðgun en enn hafi vantað sönnunargögn til að ákæra hann fyrir morð. Vonast lögregla til að gögn úr farsíma eða tölvum Lauro varpi frekara ljósi á málið.
Búist er við því að Albert Scweitzer verði formlega náðaður af morðinu á næstu dögum.