The Guardian skýrir frá þessu og segir að verðbólguþrýstingur hafi ýtt undir sölu á olíu sem er ranglega merkt.
Verð á ólífuolíu hefur rúmlega tvöfaldast frá 2018 vegna uppskerubrests af völdum öfgaveðurs af völdum loftslagsbreytinganna og annarra þátta.
Samhliða hækkandi verði hefur orðið mikil aukning í svikum tengdum sölu á ólífuolíu innan ESB. Meðal málanna er að olía er ranglega merkt, hugsanlega ekki ólífuolía eða menguð olía.
Á fyrsta ársfjórðungi 2018 var tilkynnt um 15 slík mál innan ESB en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru málin 50.
Rétt er að hafa í huga að þetta eru bara mál sem hafa verið tilkynnt af aðildarríkjunum til ESB. Tölurnar ná yfir mál innan einstakra aðildarríkja og leiða má líkum að því að málin séu miklu fleiri.
Meðal þess sem tilkynnt var um er að olía var menguð með óleyfilegum efnum eins og skordýraeitri, jarðolíu og í einu tilfelli fundust glerbrot í olíu.
Mörg mál snerust um að Extra Virgin olía hafði verið þynnt með olíu sem er ódýrari og lélegri að gæðum. Einnig voru dæmi um að Virgin olía hafi verið merkt sem Extra Virgin olía.