Keðjan birti nýlega uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung þessa árs og þvert á væntingar þá jókst salan ekki á milli ársfjórðunga og er það í fyrsta sinn síðan 2020 að það gerist.
Bloomberg News segir að neikvæður vöxtur hafi verið á öllum þeim mörkuðum sem keðjan starfar á.
Sala fyrirtækisins hefur ekki staðið undir væntingum á árinu vegna hækkandi verðs hjá því og vegna þess að viðskiptavinir hafa minna á milli handanna.
Til að reyna að lokka viðskiptavini aftur til sín hefur keðjan kynnt „ódýran matseðil“ til sögunnar og lofar salan góðu. Áhrifa hennar mun þó ekki gæta fyrr en í uppgjöri þriðja ársfjórðungs.