Bandaríski bílavefurinn iSeeCars tók fyrir skemmstu saman upplýsingar um þær bifreiðar sem eru líklegastar til að ná 200 þúsund mílum, eða tæpum 322 þúsund kílómetrum.
Skoðaðar voru upplýsingar um 260 milljónir ökutækja sem seldar voru í Bandaríkjunum á árunum 2012 til 2022 og þeim tegundum sem ekið var mest raðað á þar til gerðan lista.
Í ljósi þess að niðurstöðurnar taka aðeins til bíla sem seldir voru í Bandaríkjunum á tímabilinu þarf að taka niðurstöðurnar með smá fyrirvara. Bandarískur bílamarkaður er töluvert frábrugðinn þeim evrópska og sumar tegundir á listanum framleiddar sérstaklega fyrir markað í Norður-Ameríku.
Niðurstöðurnar sýna þó að ákveðnir bílaframleiðendur, sér í lagi frá Japan, virðast kunna að búa til bíla sem endast og endast. Á þetta einkum við um bíla úr smiðjum Toyota. Þá má geta þess að þegar kemur að endingartíma skiptir öllu að hugsa vel um bílinn og sinna reglulegu viðhaldi.
Hér eru þær tegundir sem eru líklegastar til að ná 200 þúsund bílum (322 þúsund kílómetrum) samkvæmt lista iSeeCars: