Lögregla er með málið til rannsóknar og er beðið tilkynningar frá henni um atvikið. Fjölmennt lið lögreglu var sent þegar á vettvang sem og sjúkraþyrla og alls þrettán sjúkrabílar.
Í frétt Mail Online kemur fram að árásin hafi beinst að einhvers konar vinnustofu fyrir börn þar sem unnið var með þema tengt tónlistarkonunni Taylor Swift.
Colin Parry, eigandi fyrirtækis skammt frá staðnum þar sem árásin varð, segir við Mail Online að sex eða sjö „ungar stúlkur“ hafi verið stungnar. Sagði hann að aðstæður á vettvangi líktust hryllingsmynd þar sem örvæntingarfullir foreldrar bíða eftir upplýsingum um börn sín.
Talsmaður Alder Hey-barnaspítalans í Southport segir að mikið álag sé á spítalanum og eru foreldrar hvattir til að leita annað með börn sín nema í brýnustu neyð.