fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Pressan

Skelfing grípur um sig á þýskum sumarleyfisstað eftir morð á kráareiganda

Pressan
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 18:30

Esme. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Esme E. var sjötugur kráareigandi í Þýskalandi sem rak krá í þorpinu Kressbonn, rétt við Bæjaraland, meðfram stöðuvatninu Bodensee. Á mánudagskvöld fannst lík Esme við hliðina á kofa rétt við fljótsbakkann, á leiðinni á milli þorpanna Kressbonn og Nonnenhorn.

Þetta er rétt rúmlega eins kílómeters leið sem Esme gekk hvert einasta kvöld heim til sín til Nonnenhorn eftir lokun kráarinnar. Gönguferðin tók um korter en undanfarið hafði Esme ekki notið kvöldgöngunnar heldur hafði verið mikill beygur í henni. Ástæðan var sú að hún taldi sér vera ógnað, ekki síst eftir að brotist var inn á heimili hennar og þar ruplað og rænt.

Bild greindi frá.

Lögregla hefur enn engan handtekið vegna morðsins en leggur allt kapp á að upplýsa málið. Tuttugu lögreglumenn vinna við rannsóknina sem enn hefur engu skilað.

Svæðið í námunda við fljótsbakkann er vinsæll ferðamannastaður í Þýskalandi. Bæði íbúar þorpanna og ferðamenn eru skelfingu lostnir vegna morðsins og konur þora ekki að vera einar á ferli, a.m.k. ekki eftir að skyggja tekur.

Bicanca Wollenburg dvelst í orlofsíbúð á svæðinu ásam 15 ára syni sínum, Justin. Hún sagði við Bild: „Við höfum komið hingað í átta ár og þekktum Esme vel. Eftir dauða hennar þorðum við ekki út úr íbúðinni í tvo daga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Hefur leitað að morðingja sonar síns í 24 ár – Þá barst skyndilega tölvupóstur sem umturnaði lífi hans að nýju

Hefur leitað að morðingja sonar síns í 24 ár – Þá barst skyndilega tölvupóstur sem umturnaði lífi hans að nýju
Pressan
Fyrir 6 dögum

Níu manna fjölskylda strandaglópar í Alaska – Horfðu á skemmtiferðaskipið sigla burt með eigur þeirra

Níu manna fjölskylda strandaglópar í Alaska – Horfðu á skemmtiferðaskipið sigla burt með eigur þeirra
Pressan
Fyrir 1 viku

Obama snýr bakinu við Biden

Obama snýr bakinu við Biden
Pressan
Fyrir 1 viku

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana

Kona var skotin til bana, óvopnuð á sínu eigin heimili, af lögreglumanninum sem átti að vernda hana
Pressan
Fyrir 1 viku

Átta algengustu ástæðurnar fyrir framhjáhaldi

Átta algengustu ástæðurnar fyrir framhjáhaldi
Pressan
Fyrir 1 viku

Það eru ekki háhyrningar sem valda því að hákarlar við Flórída ráðast í auknum mæli á fólk

Það eru ekki háhyrningar sem valda því að hákarlar við Flórída ráðast í auknum mæli á fólk
Pressan
Fyrir 1 viku

Ung stjarna var ekki öll þar sem hún var séð

Ung stjarna var ekki öll þar sem hún var séð
Pressan
Fyrir 1 viku

Hver myrti Sherri? – Hvar var DNA-sýnið?

Hver myrti Sherri? – Hvar var DNA-sýnið?