Í ljós kom að hér er ekki um eina stjörnu að ræða, heldur tvær ungar stjörnur sem eru á braut um hvor aðra. Þær spúa út samhliða orkustraumum um leið og þær éta upp risastóra gas- og rykskífu.
Live Science skýrir frá þessu og segir að vísindamenn hafi rannsakað WL-20 sólkerfið síðustu hálfu öldina og hafi fundið nokkrar stjörnur þar, þar á meðal fyrrgreinda stjörnu sem reyndist síðan vera tvær stjörnur.
Stjörnufræðingarnir skýrðu frá nýju uppgötvuninni á fundi the American Astronomy Society um miðjan júní.