Sky News skýrir frá þessu og segir að samkvæmt upplýsingum frá stjórnendum dýragarðsins þá hafi dýrahirðar reynt að ganga á milli og stöðva slagsmálin enn hafi ekki tekist að bjarga Rene.
Í yfirlýsingu frá dýragarðinum segir að samspil simpansa í hópum sé mjög flókið og hafi Rene, sem var 31 árs, tekið þátt í slagsmálum sem brutust út innan hópsins. Þetta gerist þegar simpansar lifi frjálsir í náttúrunni, sérstaklega í tengslum við þann tíma sem kvendýrin eru reiðubúin til að makast og þegar karldýrin berjast um yfirráðin yfir hópnum.