Mirror segir að samkvæmt fréttum ítalskra fjölmiðla þá hafi 27 ára íraskur flóttamaður nauðgað stúlkunni og kyrkt. Móðir stúlkunnar varð vitni að þessu að sögn AGI fréttastofunnar sem segir að skömmu áður en maðurinn framdi þennan hrottalega glæp, hafi hann horft á eiginkonu sína og dóttur drukkna.
Maðurinn komst lífs af þegar báturinn sökk og var handtekinn þegar hann kom í land. Móðir stúlkunnar komst einnig lífs af og lét lögregluna vita af ódæðinu um leið og hún kom í land.
70 manns voru um borð í bátnum, þar af um 20 börn. Aðeins 12 farþegum var bjargað, einn þeirra lést eftir að hafa verið fluttur í land. Búið er að finna um 30 lík.
Lögreglan segir að báturinn hafi verið á reki undan strönd Ítalíu þegar maðurinn „beindi reiði sinni að 16 ára íraskri stúlku, dóttur konu sem komst lífs af, og hafi það leitt til dauða hennar“.
Flóttafólkið sagði lögreglunni að það hafi ekki verið í björgunarvestum og að margir bátar hafi siglt fram hjá þeim án þess að koma þeim til aðstoðar.