Um er að ræða hlutabréf að andvirði 5,3 milljarða dollara í Berkshire Hathaway, sem er fjárfestingarfyrirtæki hans. Hlutabréfin renna til Bill & Melinda Gates Foundation og fjögurra annarra mannúðarsamtaka.
CNN skýrir frá þessu og segir að í heildina hafi Buffett gefið 57 milljarða dollara til mannúðarmála síðan 2006.
Buffett, sem er 93 ára, hyggst gefa rúmlega 99% af auðæfum sínum og mun börnin hans sjá um framkvæmdina að honum látnum.
Verðmæti Berkshire er um 880 milljarðar dollara. Buffett á um sjöunda hluta allra hlutabréfa í fyrirtækinu.
Áður en hann gaf hlutabréfin nú, var auður hans metinn á 134 milljarða dollara og var hann áttundi ríkasti maður heims samkvæmt lista Forbes.
Í yfirlýsingu frá Buffett, í tengslum við gjöfina, sagði hann að auður hans hafi verið um 44 milljarðar dollara þegar hann byrjaði að gefa af honum árið 2006. Góður rekstur Berkshire og hagstæðir markaðir í Bandaríkjunum hafi aukið verðmæti fyrirtækisins mikið síðan þá.