The Guardian segir að kanadísk yfirvöld hafi á síðustu árum tekist á við fjölda mála þar sem fólk heldur því ranglega fram að það sé af ættum inúíta sem eru frumbyggjar Kanada.
Meðal þessara mála er mál Karima sem skráði dætur sínar, Amira og Nadya, sem inúíta árið 2016.
Um 70.000 inúítar búa í Kanada, flestir í Inuit Nunangat sem er í norðurhluta landsins og er rúmlega 3 milljónir ferkílómetra að stærð.
Karima, sem er 59 ára, bjó um skamma hríð í Iqaluit, sem er höfuðborg Inuit Nunangat, á tíunda áratugnum. Dætur hennar fæddust hins vegar í Ontario og hafa engin tengsli við Inuit Nunangat. Karima sagðist hafa ættleitt stúlkurnar sem væru dætur inútía að nafni Kitty Noah.