Þetta sagði Charles Rae, fyrrum fréttamaður sem hafði málefni hirðarinnar á sinni könnu, nýlega þegar The Sun ræddi við hann um erfitt samband bræðranna Vilhjálms og Harry.
Charles sagðist telja að Harry og Meghan verði að taka fyrsta skrefið til sátta. „En hvort Vilhjálmur og Katrín myndu taka því vel, það efast ég mjög um. Of mikið vatn hefur runnið til sjávar. Ég er ekki viss um að Vilhjálmur og Katrín myndu taka þeim vel,“ sagði hann.