Bonnie komst í fréttirnar fyrr á árinu eftir ferð hennar til Cancun í Mexíkó þar sem bandarískir háskólanemar fjölmenntu í fríviku sinni. Þar stundaði hún kynlíf með 122 bandarískum háskólastúdentum á aðeins þremur vikum.
Bonnie er bresk en býr í Ástralíu og hefur skapað sér ábatasaman feril við að búa til myndefni, aðallega klám, og er meðal þeirra Ástralíubúa sem þéna mest á því að búa til efni fyrir hina ýmsu miðla.
Hún látið að sér kveða bæði í Ástralíu og Ameríku. Hún hefur komið sér fyrir út á götu með skilti sem á stendur: „Stundaðu ókeypis kynlíf með mér og leyfðu mér að taka það upp.“
Þrátt fyrir annríki við kynlífsiðkun það sem af er ári, telur Bonnie enn að hún geti fundið hina einu sönnu ást. Þetta snúist bara um að finna hinn eina rétta.
Hún segir að væntanlegur unnusti hennar verði að sýna starfi hennar skilning og telur enga ástæðu fyrir að hann geti ekki gert það því hún hefur þénað sem svarar til rúmlega 140 milljóna íslenskra króna á síðustu árum með að gera klámmyndir um allan heim.
Hún hefur verið á milli tannanna á fólki vegna þess hversu margar hjásvæfur hún hefur átt. Hún er sjálf meðvituð um að sú staðreynd að hún hefur sofið hjá mörg hundruð körlum, geti orðið til þess að menn hafi ekki áhuga á henni. En hún bendir fólki einfaldlega á að ef hún hefði sofið hjá sama manninum 200 sinnum, þá væri það ekkert vandamál.