Sky News skýrir frá þessu og segir að lögreglan hafi haft afskipti af unglingunum því lýsing á hinum grunuðu í ránsmálinu hafi passað við þá. Annar þeirra, Nyah, hljóp á brott frá lögreglumönnunum og beindi síðan einhverju sem líktist skammbyssu að lögreglumönnunum að sögn Mark Williams, lögreglustjóra.
Myndband, sem er í dreifingu á samfélagsmiðlum, sýnir lögreglumann elta Nyah og skella honum niður í jörðina. Tveir aðrir lögreglumenn ná þeim og síðan heyrist byssuskot. „Guð minn góður, hann skaut hann,“ heyrist vitni þá segja. Hægt er að sjá og heyra þetta í myndbandinu hér fyrir neðan. VIð vörum viðkvæma við innihaldi þess.
Williams sagði að lögreglumaður hafi skotið einu skoti að Nyah og hafi hæft hann í bringuna. Lögreglumenn veittu honum strax fyrstu hjálp en Nyah lést eftir að hann hafði verið fluttur á sjúkrahús.
Williams sagði að lögreglumenn hafi fundið eftirlíkingu af Glock 17 Gen 5 skammbyssu með skothylkjageymi hjá Nyah. Hann sagði að eftirlíkingin sé mjög raunveruleg.
Þeir þrír lögreglumenn, sem voru á vettvangi, hafa verið sendir í leyfi á meðan á rannsókn málsins stendur.