Svartholið er í miðju vetrarbrautarinnar SDSS1335+0708 og hafa stjörnufræðingar getað fylgst með því í rauntíma þegar það er að vakna til lífsins. Þeir vita ekki með vissu af hverju það er að vakna til lífsins.
Svartholið er engin smásmíði því það er um milljón sinnum massameira en sólin okkar. Það er í um 300 milljóna ljósára fjarlægð frá jörðinni.
Vísindamenn áttuðu sig á að eitthvað var að gerast með svartholið fyrir fimm árum þegar birtustig þess jókst skyndilega. Rannsóknir leiddu í ljós að það var orðið fjórum sinnum bjartara en áður. Birtustig þess er enn að aukast.
Rannsókn stjörnufræðinganna verður birt í vísindaritinu Astronomy and Astrophysics.
Ofurmassamikil svarthol eru yfirleitt í miðju vetrarbrauta, þar á meðal í Vetrarbrautinni okkar. Hið gríðarlega þyngdarafl þeirra sogar til sín ryk, gas, stjörnur og plánetur. Þyngdarafl þeirra er svo sterkt að ekki einu sinni ljós getur sloppið frá því.