Þetta er umtalsvert vatnsmagn en þetta svarar til 60 fullra keppnissundlauga. Live Science hefur eftir Adomas Valantinas, nýdoktor við Brown háskólann og aðalhöfundi rannsóknarinnar, að talið hafi verið að ekki frysi við miðbaug Mars því blanda sólskins og þunns lofthjúps héldi hitastiginu frekar háu á láglendi og fjallstoppum að degi til.
En nú hafa vísindamennirnir komist að því að það frýs á toppum fjallanna á hverri nóttu. Frostið þiðnar svo á morgnana þegar sólin hitar yfirborðið.
Þessi uppgötvun getur skipt miklu máli þegar kemur að því að reikna út hversu mikið vatn er á Mars en mikilvægt er að vita það í tengslum við fyrirhugaðar mannaðar geimferðir þangað.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Nature Geoscience.