Miðað við samtímaheimildir þá lauk sögunni eiginlega þarna. Báðar borgirnar þurrkuðust út og íbúar þeirra létust.
Eða svo var talið. Ný rannsókn varpar öðru ljósi á þetta því fólk komst lífs af og náði að byggja líf sitt upp á nýjan leik
Pompeii og Herculaneum voru auðugar borgir rétt sunnan við Napólí. Um 30.000 manns bjuggu í Pompeii og um 5.000 í Herculaneum.
Gosinu í Vesúvíusi er yfirleitt lýst sem „heimsendaatburði“ þar sem enginn komst lífs af.
Gosið stóð yfir í 18 klukkustundir. Þær líkamsleifar sem fundust í borgunum voru aðeins lítill hluti íbúbafjöldans. Einnig vantað ýmsa hluti sem reikna mátti með að hefðu varðveist. Það vantaði kerru og hesta í hesthúsin, skip hurfu frá bryggju og peningar og skartgripir voru teknir úr geymsluhólfum.
Allt þetta bendir til að margir, ef ekki nánast allir, borgarbúar hafi náð að flýja ef þeir gerðu það nógu snemma.
Nú hafa sannanir fyrir þessu fundist í gömlum rómverskum skjölum. Þau sýna að rúmlega 200 manns, hið minnsta, komust af.