Morðin voru framin í Ituri-héraðinu á fimmtudag og föstudag. Það voru liðsmenn Cooperative for the Development of the Congo (CODECO) sem stóðu að baki þessum níðingsverkum að sögn Reuters.
CODECO er einn margra herskárra hópa sem herja á austurhluta landsins.
Yfirvöld segja að flest fórnarlömbin hafi verið drepin með sveðjum en þeir sem reyndu að flýja hafi verið skotnir. Eigum þorpsbúa var rænt og hús þeirra brennd til grunna.
Ekki er vitað af hverju ráðist var á þorpin en herskáir hópar í landinu takast á um yfirráð yfir náttúruauðlindum þess og vilja einnig komast til valda.