Kolefni er eitt af lykilefnunum þegar kemur að því að líf myndist. Aldrei áður hefur kolefni fundist svo skömmu eftir Miklahvell. Þessi uppgötvun gjörbreytir vitneskju okkar um fyrstu vetrarbrautirnar.
Live Science segir að rannsóknin verði birt í vísindaritinu Astronomy & Astrophysics.
Roberto Maiolino, prófessor í tilraunastjarneðlisfræði við Kavli Institute for Cosmology við Cambridge háskólann, sagði í tilkynningu að niðurstöður fyrri rannsókna hafi bent til að kolefni í miklu magni hafi myndast frekar seint, eða um milljarði ára eftir Miklahvell.
Nú hafi kolefni, sem myndaðist miklu fyrr, fundist og hugsanlega sé þetta elsta málmtegundin. Stjörnufræðingar skilgreina efni þyngri en vetni og helíum sem málm.
Hann sagði það hafa komið á óvart að finna kolefni svo skömmu eftir Miklahvell því áður hafi verið talið að fyrstu stjörnurnar hafi myndað miklu meira súrefni en kolefni.
Francesco D‘Eugenio, stjarneðlisfræðingur við Kavli Institute for Cosmology við Cambridge háskóla, sagði í tilkynningu að þar sem kolefni sé einn af hornsteinum lífsins eins og við þekkjum það, þá sé ekki endilega rétt að líf hafi endilega þróast mun síðar í alheiminum. Hugsanlega hafi það þróast miklu fyrr en áður var talið. Ef líf sé að finna annars staðar í alheiminum, þá gæti það hafa þróast á annan hátt en hér á jörðinni.