Bílastæði við verslunarmiðstöð í Ástralíu hafa vakið mikla athygli og hlotið lof á netinu þar. Eru þau talin veita ökumönnum aukið „sjálfstraust“
Þeir sem hafa heimsótt verslunarmiðstöðvar og lagt bíl þar hafa allir upplifað bílstjórann sem kann ekki að leggja á milli línanna, maður þarf að passa hurðina vel til að bomba henni ekki í næsta bíl og jafnvel leggja af nokkur kíló til að ná að smokra sér út úr bílnum.
Bílastæðin við Glebe Hill verslunarmiðstöðina í Tasmaníu eru mun rýmri en mörg önnur þar sem það er ekki ein hvít lína sem skilur stæðin í sundur heldur rétthyrndur kassi með hvítum línum.
Glöggir átta sig á að rýmið er meira á milli bíla, sem þýðir að stæðin verða vissulega færri á bílaplaninu, en á móti kemur að maður getur athafnað sig betur inn og út úr bílnum og lítil hætta á að maður rispi næstu bíla.
„Öll bílastæði ættu að nota þessa aðferð fyrir merkingar. (Það) veitir þér sjálfstraust þegar þú leggur hér að það er frekar ólíklegt að þú fáir rispu á bílinn þinn meðan þú verslar. Ég geri mér grein fyrir því að þetta tryggir ekki algjörlega að tjón verði ekki, en líkurnar eru töluvert minni,“ sagði ánægður viðskiptavinur sem deildi þessum myndum á netið.