Sky News segir að kona hafi verið bitin af hákarli á föstudagskvöldið nærri Watersound Beach. Hún slasaðist alvarlega á handlegg og búk að sögn yfirvalda. Taka þurfti hluta af öðrum handlegg hennar af henni.
Tæpum tveimur klukkustundum árásina, réðst hákarl á tvær unglingsstúlkur um sex kílómetra frá staðnum þar sem fyrri árásin átti sér stað. Þar voru stúlkurnar í mittisdjúpum sjó með vinum sínum þegar hákarl réðst á þær. Önnur þeirra hlaut alvarlega áverka á efri hluta læris og annarri höndinni.
Talsmaður yfirvalda sagði mjög óvenjulegt að tvær hákarlaárásir eigi sér stað á sama degi við strendur Flórída. Einnig sé tímasetning þeirra óvenjuleg, því þær áttu sér stað síðdegis.
Samkvæmt skrá, sem haldin er af Flórídaháskóla, þá réðust hákarlar 69 sinnum á fólk á síðasta ári á heimsvísu. 10 manns létust í þessum árásum.