Þau ræddu saman á árlegri hátíð, Queen‘s Reading Room Festival, í Hampton Court höllinni í Surrey.
Sky News segir að Child hafi svarað drottningunni að honum „heyrist konungurinn líkjast venjulegum eiginmanni“.
Karl konungur sneri nýlega aftur til fullra starfa en hann er nú í krabbameinsmeðferð.
Ekki hefur verið skýrt frá hverskyns krabbamein hann berst við en það uppgötvaðist þegar hann var í meðferð vegna stækkaðs blöðruhálskirtils. Hann er hins vegar ekki með blöðruhálskrabbamein að sögn talsmanna hirðarinnar.