Þegar grafið var niður úr gólfinu kom þykkt lag af beinum úr mammútum í ljós. Fornleifafræðingar frá Austrian Archaelogical Institute of the Austrian Acadeymy of Sciences (OEAW) hafa síðan um miðjan maí verið við uppgröft í vínkjallaranum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá OEAW.
Hannah Parow-Souchon, sem stýrir uppgreftrinum, sagði í samtali við CNN að nú þegar hafi að minnsta kosti 300 bein fundist.
Steingripir og trékol, sem fundust hjá beinunum, benda til að þau séu 30.000 til 40.000 ára gömul.
Það er sjaldgæft að finna svo mikið af mammútabeinum á sama staðnum sagði Parow-Souchon og bætti við að þetta sé í fyrsta sinn eitthvað þessu líkt hefur fundist í Austurríki.
Bein úr minnsta kosti þremur mammútum hafa fundist og þau, ásamt steingripunum, geta hugsanlega veitt vísbendingu um hvernig steinaldarfólk veiddi sér til matar.
„Við vitum að fólk veiddi mammúta en við vitum mjög lítið um hvernig það gerði það,“ er haft eftir Parow-Souchon í fréttatilkynningunni.