En hvernig er best að losna við þau? Er eina ráðið að fasta til að losna við þau? Kannski ekki sagði einkaþjálfarinn Troels Bagge í samtali við TV MIDTVEST.
Hann sagði að ef maður er kominn í þá stöðu að aukakíló hafi safnast fyrir, sé mikilvægt að muna að leyfa sér að „syndga“ inn á milli. Hann sagði að megrunarkúr í eina viku eða mánuð komi ekki að miklu gagni ef hann er ekki grunnurinn að lífsstílsbreytingu.
„Ef maður hefur haft tilhneigingu til að verða of þungur, þá mun það alltaf fylgja manni. Maður verður því fyrst og fremst að líta á þetta sem lífsstíl sem verður að breyta að eilífu. Róm var ekki byggð á einum degi, en eftir því sem líður á baráttuna verður maður ánægður og hamingjusamur,“ sagði hann.
Hann sagði að það séu þrír lykilþættir sem skipta öllu þegar kemur að því að losna við aukakílóin.
Svefn – Ef maður vill léttast er mikilvægt að fá nægan svefn. Það hljómar kannski eins og það sé ekkert mál, en ef þú ert meðal þeirra sem eiga erfitt með nætursvefn, þá er það vandamál sem mikilvægt að takast á við. „Svefn er gríðarlega mikilvægur, því það er þá sem þú hleður batteríin. Það er þá sem líkaminn fær nýja orku. Þú borðar heldur ekki á meðan þú sefur, svo þú innbyrðir ekki hitaeiningar,“ sagði hann.
Mataræði – Hann benti á að ef maður vill léttast, þá kemst maður ekki hjá því að skoða matarvenjur sínar ofan í kjölinn. Það þurfi að venja líkamann við að fá of fáar hitaeiningar. „Þetta snýst um grænmeti, kjúkling og feitan fisk. Þetta snýst um að neyta þess sem færir líkamanum meiri orku,“ sagði hann.
Hreyfing – Síðasta atriðið er hreyfing. Hann sagði að það sama gildi hér og með mataræðið, það þarf að byrja hægt og rólega þannig að hreyfingin verði viðráðanleg og maður gefist ekki upp. Það sé hægt að fara í fleiri göngutúra, byrja að stunda einhverja íþrótt eða skella sér í líkamsræktarstöð.