Fossinn sem um ræðir er þekkt kennileiti í Henan-héraði í Kína og hafa ófáir ferðamennirnir tekið myndir af tilkomumikilli bununni í Yuntai-fjöllum.
En ekki er allt sem sýnist því göngugarpur sem fór upp á fjallið kom auga á rör sem dælir vatni inn í fossinn. Hann er því kannski eins vatnsmikill og myndir gefa til kynna.
Í frétt Daily Star kemur fram að ferðamálayfirvöld í Yuntai hafi játað að hafa komið rörinu fyrir til að „hjálpa“ fossinum í þeirri þurrkatíð sem ríkt hefur á svæðinu að undanförnu.
Myndband frá göngugarpinum birtist á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem milljónir horfðu á það og létu í sér heyra.