fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Læknir fann óvæntan hlut í konu – Eiginmaðurinn krafðist skilnaðar í kjölfarið

Pressan
Sunnudaginn 26. maí 2024 22:00

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum „Sex Sent Me to the ER“, sem eru sýndir á TCL sjónvarpsstöðinni, fræðast áhorfendur um ástæður þess að fólk endar á bráðadeild.

Atriðin eru sviðsett en sögurnar eru sannar og eru þær sóttar í læknaskýrslur, sem hafa verið gerðar opinberar, eða eftir frásögnum sem eru sendar til þáttagerðarfólksins.

Í einum þættinum er fjallað um konu sem hafði um hríð kvartað undan verkjum í kynfærum. Ekkert kom í huga hennar og eiginmannsins sem gæti skýrt þessa verki. Þau ákváðu því að fara á bráðamóttökuna.

Þar sögðu þau lækninum, sem tók á móti þeim, að þau hefðu ekki stundað kynlíf í nokkrar vikur. Þess utan sögðust þau ekki hafa neina hugmynd um hvað gæti valdið þessum verkjum.

Eftir að hafa heyrt frásögn þeirra ákvað læknirinn að rannsaka konuna til að sjá hvort hún væri með sýnilega ákverka á kynfærunum og til að meta hvort hún þyrfti að fara í enn frekari rannsóknir.

Það kom fljótlega í ljós að ekki var þörf á frekari rannsóknum eða sýnatöku því læknirinn sá strax hvað olli verkjunum.

Hann fann notaðan smokk í kynfærum hennar og hafði þessi fundur miklar afleiðingar fyrir konuna.

Ástæðan er að hjónin höfðu ekki notað smokk árum saman því maðurinn hafði farið í ófrjósemisaðgerð og því var ekki nein ástæða til að nota smokk.

Það lá því nokkuð ljóst fyrir að konan hafði haldið framhjá honum.

Í þættinum kemur fram að hann var að vonum ósáttur við þetta og skildi því við konuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?