fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Pressan

Laus við krabbameinið eftir byltingarkennda meðferð sem hann fann upp sjálfur

Pressan
Þriðjudaginn 14. maí 2024 13:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralskur prófessor í læknisfræði, Richard Scolyear, hefur nú verið laus við alvarlega tegund af krabbameini í eitt ár eftir að hafa gengist undir byltingarkennda meðferð sem hann fann upp sjálfur.

Það var fyrir tæpum tveimur árum sem Scolyear greindist með fjórða stigs illkynja meinvarp í heila, Glioblastoma, sem er með þeim illvígustu sem þekkjast. Lífslíkur þeirra sjúklinga sem greinast með þessa tegund krabbameins eru yfirleitt ekki meiri en ár eftir greiningu.

Byltingarkennd meðferð

Meðferðin sem Scolyear notaðist við byggist á rannsóknum hans á sortuæxlum en hann rekur ásamt öðrum vísindamanni, Georgina Long, stofnun í Ástralíu sem heitir Melanoma Institute Australia.

Til að gera langa sögu stutta notaði Scolyear meðferð sem byggist á ónæmismeðferð sem má segja að „kenni“ líkamanum að ráðast á krabbameinsfrumur.

Komust Scolyear og aðrir vísindamenn sem komu að verkefninu að því að ónæmismeðferð virkar betur þegar ákveðin samsetning krabbameinslyfja er gefin áður en skurðaðgerð er framkvæmd. Var lyfjablandan, sem líkja mætti við bóluefni, sérsniðin að æxlinu sem hann var með og árangurinn virðist ekki hafa látið á sér standa.

Ekki læknaður samt

Í viðtali við breska ríkisútvarpið segir Scolyear að hann hafi verið mjög stressaður þegar hann fór í myndatöku á höfði í síðustu viku. Á myndinni sáust engin merki um æxli og segir Scolyear að honum líði vel þó fyrstu mánuðirnir eftir að æxlið greindist hafi verið erfiðir.

„Þetta þýðir alls ekki að ég sé læknaður af krabbameininu en það er gott að vita að það hefur ekki komið aftur. Þannig fæ ég meiri tíma til að njóta lífsins með eiginkonu minni og þremur börnum,“ segir hann við BBC en Scolyear er 57 ára.

Eins og eðlilegt er hafa tíðindin af Scolyear vakið vonir í brjóstum vísindamanna um að hægt verði að ná betri tökum á sjúkdómnum, en talið er að minnst 300 þúsund manns greinist með heilaæxli á ári hverju í heiminum.

Scholyear og Long segja að næst á dagskrá sé að gera klínískar rannsóknir á þeirri aðferð sem notuð var og bjóða sjúklingum sem greinst hafa með þessa tegund af æxli til þátttöku. Bæði eru þó meðvituð að mikið vatn geti runnið til sjávar áður en eitthvað gerist.

„Við höfum safnað miklum gögnum og lagt grunninn að næstu skrefum sem er að hjálpa fleira fólki. Við erum ekki komin þangað ennþá. Það sem við þurfum að fókusera á er að sýna fram á að þessi ónæmismeðferð fyrir skurðaðgerð virki fyrir sjúklinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“

Piers Morgan biður grenjandi vinstri menn vinsamlegast um að halda kjafti – „Ég er kominn með nóg af þessu“
Pressan
Í gær

Fleiri ríki loka sendiráðum sínum í Kænugarði – Sálfræðihernaður hjá Rússum?

Fleiri ríki loka sendiráðum sínum í Kænugarði – Sálfræðihernaður hjá Rússum?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru umdeildustu skoðanir næsta heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna

Þetta eru umdeildustu skoðanir næsta heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn

Bakpokaferðalag 19 ára stúlkna breyttist í martröð – Berjast fyrir lífi sínu eftir ferð á barinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hér þarftu að passa töskuna þína og armbandsúr vel – Þjófagengi fara mikinn

Hér þarftu að passa töskuna þína og armbandsúr vel – Þjófagengi fara mikinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún var alltaf þreytt – Síðan fjarlægði hún eitt úr mataræði sínu og staðan gjörbreyttist

Hún var alltaf þreytt – Síðan fjarlægði hún eitt úr mataræði sínu og staðan gjörbreyttist