Málið hefur vakið óhug í Belgíu vegna alvarleika brotsins en ekki síður í ljósi ungs aldurs gerendanna.
Grunur leikur á að kærasti stúlkunnar sé höfuðpaur málsins en hann er sagður hafa lokkað stúlkuna inn í skóglendi við borgina Kortrijk þann 2. apríl síðastliðinn. Þar er hann sagður hafa nauðgað henni fyrir framan drengina. Fjórir drengjanna sem fylgdust með eru svo sagðir hafa nauðgað henni í kjölfarið.
Sá yngsti í málinu, 11 ára drengur, er sagður hafa verið á verði til að tryggja að enginn sæi til þeirra og þá kemur fram í fréttum að myndbönd af brotunum hafi verið deilt í gegnum Snapchat. Brotið var gegn stúlkunni í samtals þrjú skipti yfir fimm daga tímabil, að sögn belgískra fréttamiðla.
Belgískir fjölmiðlar segja að tíu drengir hafi verið handteknir en allir eru þeir sagðir vera af norðurafrískum eða sómölskum uppruna.
Lögregla hefur reynt að halda málinu frá kastljósi fjölmiðla þar sem rannsóknin er viðkvæm og umfangsmikil. Stúlkan sagði ekki strax frá brotunum en drengirnir voru fyrst handteknir 25. apríl síðastliðinn. Fjórir drengir, þar á meðal umræddur kærasti stúlkunnar, eru í haldi yfirvalda vegna málsins.
Kelly de Caluwé, lögmaður 16 ára pilts sem er grunaður í málinu, segir að skjólstæðingur hennar neiti sök en átti sig þó á því að eitthvað „alvarlegt“ hafi átt sér stað í málinu. Kelly hefur farið fram á að lögregla taki aftur skýrslu af skjólstæðingi sínum vegna tungumálaörðugleika sem komu upp þegar hann var fyrst yfirheyrður.
Borgarstjóri Kortrijk, Vincent Van Queickenborne, hefur einnig tjáð sig um málið en hann hafði vitneskju um það áður en það komst í kastljós fjölmiðla.
„Saksóknarar leyfa mér ekki að tjá mig mikið um málið en ég hef vitað að rannsókninni í nokkurn tíma. Þetta er hræðilegt mál sem ekki er hægt að lýsa með orðum. Ég segi það ekki einungis sem stjórnmálamaður heldur einnig sem faðir þriggja ungra barna.“