fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Pressan

Vinnuveitandi þjónustustúlkunnar lést – Það sem gerðist næst fór fram úr hennar villtustu draumum

Pressan
Mánudaginn 6. maí 2024 22:00

Nutwalai Phupongta

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í 17 ár starfaði hin taílenska Nutwalai Phupongta sem þjónustustúlka hjá hinni frönsku Catherine Delacot, sem var milljónamæringur, á heimili hennar á hinni vinsælu ferðamannaeyju Koh Samui.

En Phupongta hafði aldrei í sínum villtustu draumum látið sig dreyma um að þetta starf hennar myndi gera hana sjálfa að milljónamæringi.

Þessu skýrði hún nýlega frá í viðtali við taílenska sjónvarpsstöð eftir að ljóst var að Delacot, sem lést fyrir ekki svo löngu, hafði arfleitt hana að öllum auð sínum.

Bild skýrir frá þessu og segir að Delacot hafi flutt í lúxusvillu sína á Koh Samui ásamt eiginmanni sínum, sem var einnig franskur, fyrir mörgum árum.

Delacot var mjög rík, átti meðal annars tvö fjölbýlishús sem hún leigði út.

Hjónabandið fór út um þúfur og hún sat ein eftir í húsinu sem stendur á 3.200 fermetra lóð. Þar eru fimm sumarhús og sundlaug og leigði hún húsin út til ferðamanna.

Phupongta kom daglega til að sjá um þrif og aðra praktíska hluti fyrir Delacot.

Á mánudag í síðust viku kom maðurinn, sem sér um að þrífa sundlaugin, að Delacot látinni á pallinum við húsið. Hún lá í sólstól og var með skotsár vinstra megin á enninu og byssupúður á vinstri höndinni. Við hlið hennar lá skammbyssa, vodkaglas, sígarettur og eitt byssuskot.

Hún keypti byssuna eftir að brotist var inn til hennar. Lögreglan telur að hún hafi svipt sig lífi en skömmu áður sagði hún Phupongta að hún væri með krabbamein.

Áður en hún lést millifærði hún 500.000 taílensk baht, sem svarar til tæplega tveggja milljóna íslenskra króna, inn á bankareikning Phupongta til að hún gæti greitt fyrir útför vinnuveitanda síns.

Hún sendi einnig mörgum vinum sínum skilaboð þar sem hún sagðist ætla að  arfleiða Phupongta að eigum sínum.

Samtals eru eignir hennar metnar á sem svarar til um 800 milljóna íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?