fbpx
Þriðjudagur 29.apríl 2025
Pressan

Harmleikurinn í trúlofunarveislunni vindur upp á sig

Ritstjórn Pressunnar
Miðvikudaginn 13. mars 2024 18:30

Kalgoorlie í Ástralíu. Mynd: Wikimedia Commons - Tamsin Slater

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV greindi frá í gær lést lögreglumaður í bænum Kalgoorlie í Ástralíu, 29 ára að aldri, eftir að hann datt í sinni eigin trúlofunarveislu með þeim afleiðingum að slagæð í hálsi hans skarst og hann lést. Þessi harmleikur hefur nú undið enn frekar upp á sig en unnusta mannsins hefur greint frá því að hún gangi með barn þeirra.

Sjá einnig: Lögreglumaður lést í eigin trúlofunarveislu

Unnustan sem hafði ekki verið nafngreind heitir Lily Watts en unnusti hennar heitinn hét Liam Trimmer. Fram kemur í umfjöllun New York Post að staðið hafi til að tilkynna í trúlofunarveislunni að Watts væri komin 14 vikur á leið en ekkert hafi orðið úr því þegar harmleikurinn dundi yfir.

Fjáröflun hefur verið sett af stað á vefsíðunni GoFundme.com fyrir Watts og ófætt barn hennar og Trimmer sem mun aldrei kynnast föður sínum. Vinkona Watts segir að dauði Trimmer hafi skilið eftir tóm í lífi hennar sem aldrei verði hægt að fylla.

Watts starfar sem hjúkrunarfræðingur og segir að unnusti hennar hafi verið afar spenntur fyrir föðurhlutverkinu. Hún segir að hann hafi verið stóra ástin í lífi sínu og sorgin sé yfirþyrmandi. Hún muni sjá til þess að barnið þeirra fái að vita hvaða mann hann hafi haft að geyma.

Watts tók þátt í tilraunum til að bjarga lífi unnusta síns og segir að allt hafi verið gert til að reyna að bjarga honum en án árangurs.

Enn er ekki vitað hvernig slysið bar nákvæmlega að en það er til rannsóknar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Hófdrykkjufólk er í aukinni hættu á að fá krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma

Hófdrykkjufólk er í aukinni hættu á að fá krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ekki henda lónni úr þurrkaranum – Hún getur komið að góðu gagni

Ekki henda lónni úr þurrkaranum – Hún getur komið að góðu gagni
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Hann veifaði lögfræðigráðu sinni og peningum eins og sverði og skildi til að kúga og þagga niður í þolendum sínum.“

„Hann veifaði lögfræðigráðu sinni og peningum eins og sverði og skildi til að kúga og þagga niður í þolendum sínum.“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Faðir skaut níðing sonar síns til bana í beinni útsendingu – Nú opnar sonurinn sig um málið

Faðir skaut níðing sonar síns til bana í beinni útsendingu – Nú opnar sonurinn sig um málið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mikil fækkun á komum erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna

Mikil fækkun á komum erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hundur bjargaði tveggja ára dreng sem ráfaði næturlangt í óbyggðum innan um ljón

Hundur bjargaði tveggja ára dreng sem ráfaði næturlangt í óbyggðum innan um ljón