Þessari spurningu var nýlega velt upp á vef Live Science sem hefur eftir Shelby Yaceczko, næringarfræðingi við UCLA Health, að almennt séð lykti kúkur illa vegna þess að hann sé aukaafurð meltingarinnar.
Emma Laing, prófessor og forseti næringarfræðideildar Georgíuháskóla, sagði að eitt efnið í kúk, sem valdi vondri lykt, sé 3-metýlindól. Hún sagði að bakteríur búi þetta efnasamband til þegar þær brjóta niður amínósýruna L-tryptófan í meltingarveginum. Í þessu samhengi kann það því að virðast ansi undarlegt að þetta sama efnasamband, í litlu magni, býr til góða lykt hjá sumum blómategundum.
Í hverju okkar eru rúmlega 10.000 örverutegundir og fjöldi bakteríufruma. Þessar örverur eru nauðsynlegar til að við getum melt fæðu en það er einnig þeirra sök, að stórum hluta, að kúkur lyktar illa. Laing sagði að hinar mismunandi bakteríutegundir losi mismunandi gastegundir, allt eftir því hvaða matartegundir og efni þær eru að brjóta niður. Hún sagði að bakteríur í meltingarveginum og munninum leggi sitt af mörkum í þessu ferli.
Þar sem bakteríurnar brjóta niður það sem við borðum þá geta þættir eins og matarvenjur, áfengisneysla, fæðubótarefni og lyf haft áhrif á hvernig kúkurinn lyktar.