Mennirnir þrír, Bakhtullah Safi, Kehan Safi (báðir 18 ára) og Habibullah Ahmadzai, 26 ára, voru sakfelldir í réttarsal í Hull á Englandi á dögunum.
Atvikið átti sér stað í Hull í júlí 2023 þegar konan þurfti á leigubíl að halda eftir að hafa verið úti að skemmta sér með vinum sínum. Taldi hún að um væri að ræða skráðan leigubíl en svo reyndist ekki vera og tilgangur þremenninganna aðeins einn, að því er fram kom í niðurstöðu réttarins.
Mennirnir nauðguðu konunni og hugðust svo rukka hana um 20 pund fyrir farið. Tókst konunni að flýja undan mönnunum og hafa samband við lögreglu.
Lögreglu tókst að hafa hendur í hári mannanna nokkrum dögum síðar með aðstoð eftirlitsmyndavéla sem náðu myndum af bílnúmeri ökutækisins sem Bakhtullah ók.
Réttarhöldin í málinu stóðu yfir í átta daga og verður endanleg refsing sem fyrr segir kveðin upp í apríl. Mennirnir eiga yfir höfði sér margra ára fangelsi.
„Þetta var mjög óhugnanlegt mál og ég er ánægður að þessir menn séu nú á bak við lás og slá þar sem þeim verður refsað fyrir þessa hrottalegu árás,“ segir Ashley Webster sem fór fyrir rannsókn málsins hjá lögreglu.
„Ég á engin orð til að lýsa því hversu mikið hugrekki þessi unga kona hefur sýnt meðan á rannsókn og réttarhöldum hefur staðið. Ég vil þakka henni kærlega fyrir að hjálpa til við að taka þessa hræðilegu menn af götunni,“ bætti Ashley við.