Málið hefur vakið umræðu um það í Ástralíu hvort taka ætti harðar á alvarlegum ofbeldisglæpum einstaklinga sem ekki eru orðnir 18 ára.
Pilturinn sem grunaður er um verknaðinn á yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm að hámarki þar sem hann er undir lögaldri. Talið er að hann hafi ætlað að stela bíl konunnar sem hét Vyleen White en fjögur ungmenni sem voru með í för voru handtekin, grunuð um aðild að ódæðinu.
Terry Goldsworthy, aðstoðarprófessor við Bond University og fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, telur að breyta ætti lögum í landinu þannig að réttað yrði yfir 16 ára ungmennum líkt og um fullorðna einstaklinga sé að ræða. „Ég held að þetta sé ekki að virka eins og staðan er núna,“ segir hann.
Goldsworthy bendir á gögn máli sínu til stuðnings sem benda til þess að mörg ungmenni halda áfram að brjóta af sér, jafnvel þó þau séu á reynslulausn. „Þessum einstaklingum er hleypt út í samfélagið þó þau séu ekki hæf til að vera úti í samfélaginu.“