Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu sem var send til bandaríska fjármálaeftirlitsins. Dpa skýrir frá þessu og segir að í tilkynningunni komi fram að Zuckerberg stundi bardagaíþróttir og það hafi í för með sér hættu á „alvarlegum meiðslum og dauða“.
Einnig segir að ef Zuckerberg þurfi að fara í veikindaleyfi vegna meiðsla, geti það haft afleiðingar á rekstur Meta.
Zuckerberg gekkst undir aðgerð á hné á síðasta ári eftir að hafa slitið krossband þegar hann var að undirbúa sig undir bardaga.
Dpa segir að þetta sé í fyrsta sinn sem Meta gerir fjárfestum viðvart um áhugamál forstjórans.
Zuckerberg er bæði forstjóri og stjórnarformaður Meta sem var stofnað undir nafni Facebook fyrir 20 árum. Hann á undir 50% hlut í félaginu en er samt sem áður ráðandi innan þess því hlutabréfum hans fylgir meiri atkvæðisréttur en hlutabréfum annarra fjárfesta.
Í nýbirtu ársfjórðungsuppgjöri Meta fyrir fjórða ársfjórðung 2023 kemur fram að hagnaður félagsins hafi verið 14 milljarðar dollara og veltan 40,1 milljarður.