Mail Online varpaði ljósi á líf Elisabeth í dag en greint hefur verið frá því að faðir hennar, Josef Fritzl, verði senn veitt reynslulausn eftir að hafa verið dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 2009.
Elisabeth var misnotuð ítrekað af föður sínum og leiddi misnotkunin til þess að hún fæddi sjö börn í kjallaranum og af þeim lifðu sex. Josef Fritzl er orðinn 88 ára og hefur verið greint frá því að hann glími við elliglöp. Var hann af þeim sökum færður í annað fangelsi á dögunum sem var talið fyrsta skref hans í átt að reynslulausn.
Elisabeth fékk nýtt nafn eftir að hún losnaði úr vítisvistinni í kjallaranum og naut hún aðstoðar lífvarðar sem gætti öryggis hennar eftir að málið komst í hámæli í fjölmiðlum.
Í umfjöllun Mail Online kemur fram að Elisabeth, sem í dag er 56 ára, hafi gengið í hjónaband með lífverðinum og saman eigi þau hús á tveimur hæðum sem er í um hálftíma fjarlægð frá æskuheimili hennar í Amstetten. Lífvörðurinn, Thomas Wagner, er 23 árum yngri en hún og eru þau sögð hafa gengið í hjónaband árið 2019.
Húsið er afgirt og fylgjast öryggismyndavélar með því að enginn fari óboðinn inn á lóðina. Handan götunnar býr dóttir hennar, Kerstin. Elsti bróðir Elisabeth, Harald, er einnig búsettur á svæðinu.
Í umfjöllun Mail Online kemur fram að heimamenn virði einkalíf fjölskyldunnar og Elisabeth sé ekkert frábrugðin öðrum íbúum. „Það vita allir söguna hennar en það talar enginn um hana – þau hófu nýtt líf og fólk virðir það.“