People segir að um hádegi á mánudaginn hafi verið hringt í lögregluna og tilkynnt um hávaða á heimili í Minneapolis.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang fundu þeir þrjár látnar manneskjur. Þetta voru Shannon Patricia Jungwirth, 42 ára, Mario Alberto Trejo Estrada, 39 ára, og Jorge Alexander Reyes-Jungwirth, 20 ára. Tvö ung börn voru einnig á heimilinu og voru þau ómeidd en höfðu verið til staðar þegar þremenningarnir voru skotnir til bana.
Saksóknarar segja að upptökur úr eftirlitsmyndavélum í húsinu sýni að blárri Nissan Altima bifreið hafi verið ekið upp að húsinu og lagt við það áður en þrír menn, tveir klæddir sem sendlar hjá UPS fyrirtækinu, stigu út úr bifreiðinni og fóru inn í húsið. Einn þeirra hélt á pappakassa.
Upptökur innan úr húsinu sýna Mingo, sem var í einkennisfatnaði UPS, beina byssu að manni og fara með hann inn í svefnherbergi þar sem kona og tvö ung börn voru. Hann krafði manninn um peninga áður en hann fór út úr herberginu ásamt fólkinu.
Skömmu síðar fór hann aftur inn í herbergið ásamt konunni sem hann skaut síðan til bana. Á upptökunum sjást börnin tvö gráta þegar þau fóru inn í herbergið og sáu konuna á gólfinu.
Mingo var handtekinn um 15 km frá morðvettvanginum um þremur klukkustundum eftir að hringt var í lögregluna.
Hann neitaði alfarið að hafa verið á morðvettvanginum sem og að hafa klæðst búningi UPS. En lögreglan fann fingraför hans á pappakassanum sem hann skildi eftir á morðvettvanginum. Einnig fannst einkennisfatnaður UPS í bakpoka hans.
Lögreglan hefur ekki skýrt frá ástæðunni á bak við morðin.