fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Pressan

Þrír vinir fundust frosnir í hel í garði fjórða vinarins – Hvað gerðist?

Pressan
Fimmtudaginn 25. janúar 2024 14:26

David Harrington (annar frá vinstri), Clayton McGeeney (annar frá hægri) og Ricky Johnson (lengst til hægri).

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Kansas í Bandaríkjunum er nú með til rannsóknar dularfull dauðsföll þriggja ungra karlmanna sem fundust látnir í garði fjórða vinarins fyrir skemmstu.

Mennirnir sem fundust látnir, David Harrington, Ricky Johnson og Clayton McGeeny, voru á aldrinum 36 til 38 ára og höfðu þeir komið saman á heimili fjórða vinarins, Jordan Willis, til að horfa á leik með Kansas City Chiefs í bandarísku NFL-deildinni í amerískum fótbolta.

Leikurinn sem um ræðir fór fram að kvöldi 7. janúar og skiluðu mennirnir sér ekki heim eftir leikinn. Var það ekki fyrr en 9. Janúar að áhyggjufull unnusta McGeeny hafði samband við lögreglu og bað hana að fara heim til Jordans að lík þeirra fundust. Voru þremenningarnir látnir úti í garði og virðast hafa frosið í hel.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að aðstandendur mannanna hafi sett sig í samband við Jordan á mánudeginum og þriðjudeginum en hann engu svarað. Samt hafi hann verið heima hjá sér og bílar vina hans í innkeyrslunni fyrir utan húsið hans.

Lögregla knúði dyra á heimili Jordans eftir að mennirnir fundust látnir og er hann sagður hafa komið til dyra með rauðvínsglas í hönd – grunlaus um að vinir hans væru látnir. Hann hafi ekki kippt sér upp við það að bílarnir væru í innkeyrslunni enda alvanalegt að menn skilji ökutæki sín eftir ef þeir fá sér í glas yfir íþróttaleik.

Lögregla segir að Jordan liggi ekki undir grun um aðild að dauða vinanna en ýmsir, einna helst aðstandendur mannanna, hafa klórað sér í kollinum yfir því hvað varð til þess að þeir létust.

Caleb Alexander, læknir við Johns Hopkins-sjúkrahúsið, segir við New York Post að ýmislegt bendi til þess að mennirnir hafi tekið inn einhvers konar ópíóða eða önnur sterk lyf. Notkun slíkra lyfja geti verið varasöm og þá ekki síst þegar áfengi er einnig haft um hönd.

Lögregla telur sem fyrr segir útilokað að um morð hafi verið að ræða en um það eru ekki allir sammála. Aðstandendur eins mannanna segja að lögregla þurfi að skoða hvort Jordan, vísindamaður sem hefur starfað við rannsóknir á HIV-veirunni, hafi eitrað fyrir vinum sínum.

Lögregla bíður eftir því að fá niðurstöður úr krufningu og eiturefnarannsókn sem gerð var eftir að mennirnir fundust látnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Líksnyrtir svívirti lík dæmds kynferðisglæpamanns

Líksnyrtir svívirti lík dæmds kynferðisglæpamanns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sakfelld fyrir að hafa ætlað að ræna völdum í Þýskalandi og ræna heilbrigðisráðherranum

Sakfelld fyrir að hafa ætlað að ræna völdum í Þýskalandi og ræna heilbrigðisráðherranum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bað gervigreind Elon Musk að reikna líkurnar á því að Trump sé rússneskur útsendari – Þetta var svarið

Bað gervigreind Elon Musk að reikna líkurnar á því að Trump sé rússneskur útsendari – Þetta var svarið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrrum hershöfðingi hjá NATO segir að þetta verði næstu skotmörk Pútíns á eftir Úkraínu

Fyrrum hershöfðingi hjá NATO segir að þetta verði næstu skotmörk Pútíns á eftir Úkraínu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Teslueigendur fá það óþvegið – Mála Tesla-merki og nasistatengingu við heimili þeirra

Teslueigendur fá það óþvegið – Mála Tesla-merki og nasistatengingu við heimili þeirra
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfullt hvarf manns sem sagðist vera að fara um borð í geimskip – Hefur ekki sést síðan

Dularfullt hvarf manns sem sagðist vera að fara um borð í geimskip – Hefur ekki sést síðan