Anne, sem var 68 ára, hvarf frá heimili sínu þann 31. október það ár og í fyrstu var unnið út frá þeirri tilgátu að henni hafi verið rænt. Í húsinu fannst miði, skrifaður á bjagaðri norsku, þar sem krafist var lausnargjalds fyrir Anne upp á 9 milljónir evra og greiða ætti það í rafmynt.
Á þessum rúmu fimm árum sem liðin eru hefur mikið vatn runnið til sjávar og lögregla skoðað allskonar kenningar. Eftir ítarlega rannsókn málsins taldi lögregla sig geta fullyrt að Anne hefði verið myrt og blóðblettir hefðu fundist á heimili hennar og eiginmanns hennar.
Tom Hagen hefur legið undir grun í málinu undanfarin misseri og var hann handtekinn og kærður fyrir morð, eða aðild í morði, vorið 2020. Hann gengur enn laus og hafa réttarhöld ekki farið fram yfir honum. Sjálfur hefur Tom neitað staðfastlega að hafa átt þátt í hvarfi eða dauða eiginkonu sinnar.
NRK greinir frá því í dag að lögregla skoði nú „nýja sviðsmynd“ í málinu en lögregla vilji ekkert segja til um hvers eðlis sú sviðsmynd er.
Guro Holm Hansen, talsmaður saksóknaraembættisins, segir að rannsóknin sé enn opin. Bæði sé verið að skoða það sem þegar hefur komið fram en einnig nýjar upplýsingar og leggja mat á þær.