Fjölmiðlar um allan heim greindu frá því nú fyrir stundu að brak hefði fundist sem er talið líklegt að sé úr kafbátnum Titan sem hefur innanborðs alls 5 manns. Kafbáturinn var á vegum fyrirtækisins Oceangate í skoðunarferð að flaki farþegaskipsins Titanic, í Norður-Atlantshafi, en hefur verið saknað síðan á sunnudag.
Bandaríska strandgæslan hefur staðfest að brak hafi fundist og mun greina nánar frá fundinum á blaðamannafundi sem hefst klukkan 19 að íslenskum tíma
Í frétt The Daily Beast segir að heimildir séu fyrir því að um sé að ræða hluta af lendingargrind og afturhluta Titan.
Sérfræðingur í björgun skipa og báta tjáir Daily Beast að brakið sé líklega til komið vegna þess að Titan hafi fallið saman á rúmlega eins og hálfs kílómetra dýpi vegna hins gífurlegs þrýstings og lélegrar smíði bátsins.
Annar sérfræðingur segist þó ekki viss um að brakið sé úr Titan.
Titan var með súrefnisbirgðir sem áttu að geta enst fram á daginn í dag en ekki er ólíklegt að súrefnið hafi klárast fyrr hafi farþegar og áhöfn andað óðar og tíðar vegna ótta. Hafi báturinn fallið saman er hins vegar víst að allir um borð hafi drukknað.
Margir sem kynnst hafa aðstæðum um borð í Titan segja að öllu öryggi hafi verið þar ábótavant og stenst báturinn ekki alþjóðlega öryggisstaðla þar sem hann er skilgreindur sem tilraunafar.