People skýrir frá þessu og segir að Fieramusca hafi fallið frá rétti sínum til að áfrýja dómnum og hafi játað sök. Með því að falla frá réttinum til að áfrýja á hún möguleika á að fá reynslulausn þegar hún hefur afplánað um helminginn af dómnum og þau rúmlega þrjú ár sem hún hefur setið í fangelsi koma til frádráttar refsingunni. Ef hún hefði ekki fallið frá áfrýjunarréttinum átti hún ævilangt fangelsi yfir höfði sér án möguleika á reynslulausn eða náðun.
Það var þann 12. desember 2019 sem Shane Carey, unnusti Broussard, tilkynnti lögreglunni um hvarf hennar. Hún hafði þá nýlega eignast dótturina Margot. Hún átti einnig sex ára son.
Lögreglan hóf strax umfangsmikla leit að Broussard og lagði meðal annars leið sína heim til Fiermusca í Harris County, nærri Houston. Þar fundu lögreglumenn lík Broussard í tösku í skotti bifreiðar Fiermusca. Krufning leiddi í ljós að hún hafði verið kyrkt með hundataumi.
Sem betur fer fannst Margot heil á húfi.
Fieramusca var kærð fyrir morð að yfirlögðu ráði og ósæmilega umgengni við lík. Hún var einnig kærð fyrir mannrán fyrir að hafa numið Margot á brott og sagt að hún væri dóttir hennar.