Nicole Aniston, sem hefur leikið í rúmlega 300 klámmyndum, býr yfir ákveðinni reynslu af typpum og hefur komist í snertingu við ýmsar gerðir typpa. Einhverjir lesendur hafa kannski séð henni bregða fyrir í myndum á borð við: Blowjob Bangers, Blondie Wants the Dick eða Busty Blonde Cock Lovers.
Aniston segir að stærðin skipti ekki svo miklu máli. „Mér líkar vel við typpi af meðalstærð. Ég er ekki hrifin af stórum typpum. Þá er svo erfitt að notast við margar góðar stellingar. Meðalmaður getur verið góður, maður með lítið typpi getur verið góður. Besta kynlífið sem ég hef stundað var með manni sem var með typpi af meðalstærð,“ sagði hún í hlaðvarpinu Unfiltered en í því ræðir fólk úr klámiðnaðinum eitt og annað honum tengt.
Elsa Jean, sem hefur meðal annars leikið í Blonde Freshman Fucks a Huge Black Cock, hafði einnig ákveðnar skoðanir á hvaða typpi eru best. „Persónulega þá kýs ég stærri typpi en það skiptir samt ekki öllu máli. Ég get ekki verið með einhverjum með lítið typpi sem kann ekki að veita konu munngælur. Hann verður að bæta upp fyrir typpastærðina með munninum því ég kýs frekar stór typpi,“ sagði hún.
En hún var ekki að ræða um risastór typpi í þessu samhengi því hún sagði að draumastærðin sé 20 cm. Þess utan sagði hún að flestir karlmenn séu lélegir þegar kemur að því að veita munngælur og hún nenni ekki einu sinni að reyna að kenna þeim að standa sig betur. „Það krefst bara of mikils tíma og krafta og ég vil frekar sætta mig við það sem ég hef náttúrulega við höndina,“ sagði hún og átti þar við typpi þeirra.
Christina Love tjáði sig einnig um efnið en hún er meðal annars þekkt fyrir að gefa „typpaeinkunnir“ en þá gefur hún typpamyndum, sem aðdáendur senda henni, einkunn. Hvað varðar typpastærð bólfélaganna sagði hún: „Ég er 155 cm á hæð svo ég get ekki tekið við 25 cm typpi. Lítil typpi, komið til mín – lítil typpi eiga kærleika skilinn,“ sagði hún og bætti við að hún vilji hafa þau 10-12 cm löng.