fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
Pressan

Hann kemur á nóttunni og það veldur mörgum Bandaríkjamönnum miklum vandræðum

Pressan
Fimmtudaginn 7. desember 2023 22:00

Frá New York. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir kannast eflaust við ímyndina um jólasveininn sem kemur fljúgandi á sleðanum sínum, sem er dreginn af hreindýrum, og skellir sér niður skorsteininn til að gefa börnum jólagjafir. Þetta er hin bandaríska hugmynd um komu jólasveinsins og hún hefur náð ágætri fótfestu víða um heim enda hafa henni verið gerð góð skil í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta.

Þessi hefð, eða öllu heldur hugmynd, er svo rótgróin í Bandaríkjunum að ekkert fær hreyft við henni. Jólasveinninn hrópar Hó, hó, hó og kemur á sleðanum sínum með jólagjafir. Það er því árviss atburður að mörg þúsund eftirvæntingarfull börn neita að fara að sofa því þau vilja verða vitni að því þegar jólasveinninn kemur með jólagjöfina þeirra. Margir hafa því fundið sig knúna til að birta færslur á Internetinu um  hvernig er hægt að fá börnin til að sofa þrátt fyrir að jólasveinninn sé væntanlegur.

Fyrsta jólatréð

Fyrsta skráða heimildin um að jólatré hafi verið sett upp innanhúss er frá Boston í Massachusetts árið 1832. Þýski innflytjandinn Charles Follen setti þá upp jólatré heima hjá sér. Í kjölfarið hófst markaðsvæðing jólanna í Bandaríkjunum og nú þekkja eflaust flestir jarðarbúar nokkuð eða jafnvel vel til bandarískra jólahefða.

Að kvöldi aðfangadags setja Bandaríkjamenn kökur og mjólk á ákveðinn stað fyrir jólasveininn og fara síðan að sofa, eða reyna að sofna, og bíða jóladagsmorguns þar sem gjafaæði rennur á fólk og það rífur upp pakkana sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því

Sat látin við skrifborðið sitt í nokkra daga og enginn tók eftir því
Pressan
Í gær

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið

Fyrrum forstjóri Netflix hvetur fólk til að vinna ekki svona mikið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann

Lík hans fannst í helli árið 1977 – Nú er loksins búið að bera kennsl á hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið

Ellilífeyrisþegi lét innbrotsþjófinn finna hvar Davíð keypti ölið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum

Fara fram á dauðadóm yfir þremur Bandaríkjamönnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl

Meiri líkur á bílveiki þegar ekið er í rafbíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera

Hún vinnur við að fjarlægja skapahár en eitt neitar hún að gera