Íbúar Lundúna hafa einnig notið góðs af þessari velvild Norðmanna á ári hverju frá árinu 1947, en flutningar yfir hafið virðast hafa farið eitthvað illa með jólatréð í ár.
Tréð var fellt í nóvember síðastliðnum skammt norður af Osló og nú er búið að setja það upp á Trafalgar-torgi sem er vinsælt meðal ferðamanna. Ljósin verða svo tendruð næstkomandi fimmtudag.
Netverjar voru fljótir að benda á að jólatréð liti ekkert sérstaklega vel út eftir flutninginn. „Þetta er bara hálft tré. Það er víst kreppa í Noregi líka,“ sagði einn. Annar spurði: „Hvar er hinn helmingurinn?“
Tréð sem Norðmenn gáfu í fyrra var einnig gagnrýnt af netverjum en það þótti ekkert sérstaklega tilkomumikið. „Norðmenn senda okkur jólatré á hverju ári sem þakklætisvott fyrir aðstoð okkar í seinni heimsstyrjöldinni. En ég er farinn að halda að Norðmönnum sé ekkert sérstaklega vel við okkur,“ sagði einn við það tækifæri.