Í rannsókn, sem heitir „Frábært kynlíf“ takast sálfræðingurinn og kynlífsráðgjafinn Peggy J. Kleinplats og samstarfsfólk hennar á við hinn hefðbundna skilning á hvað telst kynferðislega fullnægjandi.
Þvert á vinsælar myndir, sem eru dregnar upp í fjölmiðlum, sýna þau fram á að lykillinn að frábæru kynlífi felst ekki í líkamlegri kunnáttu eða dramantískri ástríðu, heldur í dýpri og nánari tengingu fólks.
Í rannsókninni, sem fólk með mismunandi bakgrunn, á mismunandi aldri, kyni og kynhneigð tók þátt í, kom í ljós að sláandi líkindi voru með því hvernig fólkið lýsti bestu kynlífsupplifunum sínum.
Í þessum frásögnum kom berlega í ljós að þættir sem algleymi á þessari stundu, djúp tenging við hinn aðilann og vilji til að vera tilfinningalega viðkvæm(ur) og til að taka áhættu voru mikilvægir. The Guardian skýrir frá þessu.
Rannsóknin sýnir að besta upplifunin teygir sig út úr svefnherberginu og leggja höfundar hennar til að nýja og breiðari skilgreiningu á kynlífi þar sem fjöldi skynrænna upplifana verður tekinn með í reikninginn því þær geti haft betra kynlíf í för með sér.