Eitt það mikilvægasta, sem maður gerir þegar sett er í uppþvottavél, er að raða skynsamlega í hana. Það er að segja, ekki setja alltof þétt í hana. Til dæmis eiga skálar og diskar ekki að standa hlið við hlið, því þá nær vélina ekki að þvo þá almennilega. Gættu þess einnig að djúpir diskar, skálar og þess háttar séu staðsett þannig að vatnið „festist“ ekki í þeim.
Flestar uppþvottavélar eru með að minnsta kosti tvær hæðir og hugsanlega þá þriðju fyrir hnífapörin. Neðsta hæðin er yfirleitt fyrir diska, skálar og aðra stóra hluti en sú efri er yfirleitt fyrir glös og bolla.
Í efri grindinni eru yfirleitt stuttir teinar til að glös geti staðið upprétt án þess að detta en það er mikilvægt að setja glösin ekki yfir þessa teina. Ef það er gert þá geta myndast blettir á þeim og þau geta jafnvel brotnað. Glösin eiga að halla upp að stöngunum.
Hvað varðar hnífapör þá er rétt að hafa í huga að það er ekki sama hvernig þeim er komið fyrir í vélinni ef maður vill fá þau eins hrein og hægt er. Ef það er grind fyrir hnífapörin þá á að láta „haus“ gafla vísa að miðjunni en „haus“ hnífa frá henni. En skeiðar á að láta snúa á víxl með „hausinn“ í átt að miðjunni og frá henni. Ef það er karfa fyrir hnífapörin þá á að láta „hausinn“ á öllu snúa upp. Það eykur líkurnar á að hnífapörin verði hrein.