Sænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að þekktur sænskur leikari hafi verið ákærður fyrir fíkniefnabrot. Þeir geta hins vegar ekki nafngreint hann af lagalegum ástæðum.
Í umfjöllun Aftonbladet kemur fram að leikarinn hafi verið staddur á Arlanda-flugvelli í Stokkhólmi, í október síðastliðnum, og verið á leiðinni til Amsterdam þegar hann var handtekinn en hann reyndist vera með kannabis í bakpokanum sínum.
Leikarinn hefur nú verið ákærður fyrir minniháttar fíkiniefnabrot en hann var með 2,43 grömm af kannabis í bakpokanum.
Hann viðurkenndi við yfirheyrslur að hafa verið með fíkniefni á sér en segist ekki vita hvernig kannabisið endaði í bakpokanum hans. Hann segist hafa lánað vinum sínum bakpokann en kveðst ekki muna hvaða vinir það voru.
Leikarinn segist ekki nota kannabis eða önnur ólögleg fíkniefni.
Aftonbladet segir að leikarinn hafi átt blómlegan feril og hafi leikið í mörgum þekktum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Það kemur ekki fram hvort leikarinn hafi starfað mikið erlendis.
Minniháttar fíkniefnamálum eins og þessum, í Svíþjóð, er mögulegt að ljúka án réttarhalda ef viðkomandi játar brot sitt. Geri sá ákærði það fær hann annaðhvort sekt eða skilorðsbundinn dóm.
Samkvæmt upplýsingum Aftonbladet hefur leikarinn tjáð yfirvöldum að hann muni samþykkja þá refsingu sem hann fær.