Yahoo segir að Manuel hafi sagt að hún hafi þénað 20.000 dollara á einum sólarhring eftir komuna til Gold Coast.
Hún auglýsti á netinu að hún myndi verða á staðnum í þær þrjár vikur sem unglingarnir eru þar að fagna skólalokum. Hún hvatti unga menn, sem gætu sannað fyrir henni að þeir séu eldri en 18 ára, að hafa samband.
Hún segist hafa stundað kynlíf með 20 unglingum á meðan á dvöl hennar stóð og hafi hún tekið það upp og birt á netinu.
Manuel hefur starfað í klámiðnaðinum síðan hún var 18 ára og þekkir því nokkuð vel til. Hún sagði að ljúka þurfi nokkrum ákveðnum skrefum áður en hún tekur upp klámefni sem hún selur síðan aðgang að á netinu. Karlarnir þurfa að sanna með opinberum skjölum að þeir séu eldri en 18 ára og einnig þurfa þeir að sýna fram á að þeir séu ekki undir áhrifum áfengis.
Erin Molan, útvarpskona, fjallaði um málið í þætti sínum og sagði hegðun Manuel vera eins og hegðun „rándýrs“ og að margir muni sjá eftir ákvörðun sinni um að taka þátt í þessu og láta mynda sig.