Ester Sturrus, sem starfar sem flugfreyja hjá KLM, er iðin við að birta myndbönd á TikTok þar sem hún segir frá ferðum sínum.
Í nýlegu myndbandi segir hún að það sé snjallt að henda alltaf vatnsflösku undir rúmið þegar komið er inn í hótelherbergi.
Ástæðan er að þannig er hægt að ganga úr skugga um að enginn sé í felum undir rúminu án þess að þurfa að leggjast á gólfið eða beygja sig.
Það er auðvitað ólíklegt að ferðamenn verði fórnarlamb þjófa eða misindismanna inni á hótelherbergi en þó er ekki hægt að útiloka neitt. Sérstaklega í herbergjum, sem eru ekki svo hátt uppi, í sumum löndum.
Hún ráðleggur fólki að láta flöskuna rúlla undir rúmið þannig að hún komi undan því hinum megin. Ef flaskan rúlli ekki undan því hinum megin, þá sé full ástæða til að hafa varann á sér. En mundu að ef flaskan kemur ekki undan rúminu þá er ekki þar með sagt að einhver sé í felum undir því. Það getur alveg verið að rúmföt séu geymd undir því eða þá að þú hafir ekki kastað eða rúllað flöskunni af nægilega miklu afli til að hún kæmist alla leið.