Mirror skýrir frá þessu og segir að systir Augusto, Carolina, hafi reynt endurlífga Augusto á meðan beðið var eftir sjúkraflutningsmönnum en án árangurs. Eins og áður sagði tókst ekki að bjarga lífi hans og lést hann á laugardaginn.
Afi hans lést fyrir nokkrum vikum og er ríkir því mikil sorg hjá fjölskyldunni. Frændi hans, Hebert Bonato, sagði að þetta hafi verið erfiðar vikur. Fyrst hafi afi Augosto dáið og síðan hafi raflost orðið honum að bana. Ekki sé vitað hvort jólaserían hafi verið jarðtengd.
Hann sagði að Augusto hafi verið altarisdrengur í hverfiskirkjunni og hafi verið mjög trúaður. Honum hafi þótt jólin frábær og hafi viljað leggja sitt af mörkum svo jólagleðin næði til sem flestra.