Maria var að busla í sjónum með fimm ára gamalli dóttur sinni þegar hákarlinn réðst til atlögu. Að sögn sjónarvotta var hún aðeins tuttugu metrum frá ströndinni þegar atvikið varð og náðu nærstaddir að koma henni í land til að gera að sárum hennar.
Henni blæddi hins vegar út á skömmum tíma og var úrskurðuð látin þegar á sjúkrahús var komið. Dóttir hennar komst lífs af og án meiðsla og er það að líkindum Mariu að þakka. Þegar hún varð vör við hákarlinn náði hún að koma stúlkunni fyrir á flotholti.
Yfirvöld á svæðinu hafa gefið út viðvörun til strandgesta á svæðinu um að halda sig frá sjónum að sinni. Árásir hákarla úti fyrir ströndum Mexíkó eru tiltölulega sjaldgæfar. Í mars síðastliðnum var 10 þó ára drengur bitinn illa af hákarli úti fyrir ströndum Cancun. Engar hákarlaárásir voru tilkynntar á síðasta ári.